Alls voru samþykktar 48 tillögur á 32. aðalfundi LS. Fjölmenni sótti fundinn og var einkar góð virkni þátttakenda, hvort heldur sem um kjörna fulltrúa eða þeirra sem ekki höfðu atkvæðisrétt.
Samþykktir fundarins hafa verið settar saman í eitt skjal sem sjá má hér að neðan. Í upphafi þess er eftirfarandi ályktun:
„Alþingiskosningar 29. október 2016
Aðalfundur LS hvetur smábátaeigendur um land allt til að gera rækilega vart við sig á framboðsfundum sem haldnir verða í aðdraganda alþingiskosninga 29. október nk.
Flokkar sem samþykktirnar ná til auk þess sem hér hefur verið vakin athygli á eru eftirfarandi:
Strandveiðar
Makríll
Byggðakvóti
Línuívilnun
Heildarafli
Grásleppuveiðar
Stjórn fiskveiða
Veiðgjöld og annar kostnaður
Öryggismál
Fiskverð
Umhverfi
Innri málefni