Jónas SH-237 varð aflahæstur strandveiðibáta í maí. Skipstjóri og eigandi er Helgi Bergsson Ólafsvík.
Helgi náði 12 veiðiferðum og endaði aflinn í 12.794 kg, þar af 3.295 kg ufsi og 97 kg af karfa.
Helgi sagði þetta hafi verið hálfgerður barningur allan mánuðinn. Veðrið ekki upp á það besta, menn væru jafnvel farnir að tala um hvort sama ótíðin verði í sumar og í fyrra. Nokkuð langt var róið til að ná góðum þorski. Það hefði þó gengið vel að ná skammtinum og á landleiðinni hefði verið rennt fyrir ufsa.
Þegar rætt var við Helga fyrr í dag var hann nýkominn úr róðri. „Þorskurinn virðist vera að ganga nær landi. Hrygningarþorskur fyrir sunnan nes ásamt stórufsa, sagði Helgi. Aðspurður um hver aflinn hafi verið – „jú, það var ágætt í dag 2,3 tonn.
Þetta er þriðja árið sem Helgi rær á strandveiðum.
Hamingjuóskir til Helga.
Á næstu dögum verður birtur listi sundurgreindur eftir svæðum yfir þá 10 báta sem fiskuðu mest í maí.
Myndir: Alfons Finnsson