Kæling afla til fyrirmyndar


Matvælastofnun (MAST) og Fiskistofa hafa hafið átak í að
fylgjast með aflameðferð og hitastigi í lönduðum afla.  Stefnt er að því birta reglulega niðurstöður
úr hitastigseftirliti.

 

Fyrsta birting hefur nú litið dagsins ljós og er það
tímabilið 1. júní – 16. júní.
Meðalhitastig í afla við löndun var 2,4°C.  Nánast engin dæmi voru um að afli kæmi óísaður
að landi.

 

Fréttin á heimasíðu MAST lýkur með eftirfarandi
orðum:  

„Eftirlit með aflameðferð og
hitastigi í lönduðum afla mun halda áfram að fullum krafti í sumar og eru
sjómenn hvattir til að byggja á þessari góðu byrjun og bæta kælingu og
aflameðferð enn frekar