Frá 21. maí sl. hafa staðið yfir viðræður undir stjórn ríkissáttasemjara um kjarasamning milli LS og sjómannasamtakanna. Á fundi í gær dró til tíðinda. Sáttasemjari mat stöðuna þannig að það lítið stæði út af að aðilar ættu að geta lokið við gerð samnings á fundinum. Það reyndist rétt þar sem samninganefndir rituðu nöfn sín undir kjarasamning rétt fyrir miðnætti.
Samningurinn gildir til 1. janúar 2014.
LS mun kynna samninginn á aðalfundum svæðisfélaganna í september og október þar sem félagsmenn munu greiða um hann atkvæði. Talning og niðurstaða verður kynnt 5. október nk.