Klettur boðar til félagsfundar

Klettur – félag smábátaeigenda Ólafsfjörður – Tjörnes – hefur boðað til félagsfundar kl 14:00 n.k. sunnudag 3. mars.  Fundurinn verður haldinn á veitingahúsinu Strikinu á Akureyri.  
Af nægu er að taka í málefnum smábátaeigenda þessa dagana; grásleppan, frumvarp til nýrra laga um stjórn fiskveiða, makríll ofl.
Félagsmenn eru hvattir til að fjölmenna.
Formaður Kletts er Pétur Sigurðsson Árskógssandi