Smábátafélagið KLETTUR (Ólafsfjörður – Tjörnes) hefur boðað félagsmenn sína til fundar. Fundurinn verður haldinn á Akureyri nk. sunnudag 13. mars og hefst kl 11:00.
Fundarstaður er veitingastaðurinn Bryggjan að Strandgötu 49.
Á fundinum verður m.a. rætt um:
- Grásleppuvertíðina 2016
- Strandveiðar
- Stjórn fiskveiða, veiðigjöld, frumvörp o.þ.h.
- Fyrirhugað laxeldi í Eyjafirði, stöðu mála
- Félagsmál
- Önnur mál
Örn Pálsson framkvæmdastjóri LS mætir á fundi
Smábátaeigendur í KLETTI – sýnum samstöðu og fjölmennum á fundinn.
Léttar veitingar í boði félagsins.
Formaður Kletts er
Óttar Már Ingvason Akureyri