Klettur vill endurskoða veiðarfæratakmarkanir

Aðalfundur Kletts var haldinn á Akureyri 30. september sl.  Fyrir fundinum lágu fjölmargar tillögur frá stjórn félagsins sem voru ræddar í þaula og afgreiddar sem ályktanir til aðalfundar LS.
Tillaga um rýmri heimildir á veiðarfæratakmörkunum krókaaflamarksbáta var mikið rædd.  Kostum og göllum var velt upp.  Niðurstaða fundarins varð sú að kominn sé tími til að skoða ákvæði sem heimilar aðeins notkun línu og handfæra við veiðar, að undanskildum hrognkelsaveiðum.  
Dalvík.JPG
 
Veiðarfæratakmarkanir í krókaaflamarki
Aðalfundur Kletts telur tímabært að rýmka ákvæði um veiðarfæra-takmarkanir sem bátar með krókaaflamarksleyfi sæta.
Greinargerð.
Skoða ætti að heimila að einhverju leyti staðbundin veiðarfæri innan kerfisins (net), hvort sem það er gert með sérveiðileyfum eða almennri breytingu á veiðikerfi krókaaflamarks-báta.  Slík ráðstöfun yrði til að auka sveigjanleika og bæta afkomu                   
smábátaútgerðar til annarra veiða t.d. með síldar-, skötusels-, grálúðu- og kolanetum.     (Dalvík)
Auk þess mundi það leiða til bættrar afkomu fyrir útgerð krókabáta að heimila netaveiðar á ufsa og þorski.  Einnig myndu möguleikar smábátaútgerðarinnar til að nýta aflaheimildir í ufsa batna við slíka ráðstöfun.
Ályktanir aðalfundar Kletts:   2017 Klettur tillögur.pdf.
Stjórn Kletts var endurkjörinn
Þórður Birgisson formaður
Andri Viðar Víglundsson
Einar Þorsteinn Pálsson
Jón Kristjánsson
Víðir Örn Jónsson
Myndin frá Sandgerðisbót á Akureyri – aðstaða til fyrirmyndar
IMG_6816.JPG