Kristján Þór tekur við embætti

Landssamband smábátaeigenda óskar Kristjáni Þór Júlíussyni til hamingju með embætti sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og velfarnaðar í starfi.
Kristján Þór er þingmaður Sjálfstæðisflokksins í NA-kjördæmi.
Samtímis og nýr ráðherra er boðinn velkominn þakkar Landssamband smábátaeigenda fráfarandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttir fyrir samstarfið.