Verð á krókaaflamarki í þorski er nú 285 kr/kg og aflamarki 326 kr/kg. Verðin hafa haldist nokkuð stöðug allt þetta ár.
Fiskistofa hefur tekið saman þróun verðsins frá 1. janúar 2005 til 11. nóv. sl. Þar má greina meiri sveiflur í verði krókaaflamarks sem í flestum tilvikum er lægra en aflamarkið. Verðin hafa verið að hækka ár frá ári ef undan er skilið nokkrir mánuðir eftir bankahrunið í byrjun október 2008.