Strandveiðifélagið Krókur hefur boðað félagsmenn sína til aðalfundar.
Fundurinn verður haldinn í húsnæði hjálparsveitarinnar Blakks á Patreksfirði nk. mánudag 13. september.
Fundurinn hefst kl 17.
Í fundarboði eru félagsmenn hvattir til að fjölmenna á fundinn til fróðleiks og áhrifa.
Formaður Króks er Einar Helgason Patreksfirði.