Lækkun á sérstöku veiðigjald – umsóknareyðublað

Fiskistofa var rétt í þessu að tilkynna að umsóknareyðublað og leiðbeiningar um tímabundna lækkun á sérstöku veiðigjaldi 2012 væri tilbúið.
Vakin er athygli á að ef lækkunin á að koma til framkvæmda á fyrsta eindaga gjaldsins, 1. desember nk. verður umsókn ásamt fylgigögnum að berast Fiskistofu eigi síðar en 5. nóvember nk.