Lækkun á sérstöku veiðigjaldi – 130 umsóknir

Fiskistofa hefur móttekið alls 130 umsóknir um lækkun á sérstöku veiðigjaldi.  Að sögn starfsfólks stofunnar átti það gott samstarf við útfyllingu og skil á umsóknum og mun gera sitt besta til að afgreiða þær svo að lækkunin komi til framkvæmda á fyrsta gjalddaga sem er 1. desember nk.
Vakin er athygli á að áfram er hægt að sækja um lækkun sem kemur þá til framkvæmda á öðrum eða þriðja gjalddaga veiðigjaldsins.