Sjómannadagurinn er haldinn hátíðlegur
um land allt. Víða er boðið upp á
fjölbreytt skemmtiatriði og allt undirlagt í hátíðarhöldum.
Í Reykjavík er haldin „Hátíð hafsins
sem er nú enn viðameiri en undanfarin ár.
Hátíðin hófst í dag og hápunkti nær hún á morgun á sjálfan sjómannadaginn.
Meðal þess sem er á dagskrá er
kvikmyndasýning í boði Landssambands smábátaeigenda – „Þeir fiska sem róa. Myndin verður sýnd í kvikmyndasalnum Cinema
No2, í verbúð nr. 2 við gömlu höfnina í Reykjavík.