Launaútreikningur til hagsbóta fyrir félagsmenn

Landssamband smábátaeigenda hefur látið útbúa forrit ( í Excel ) til launaútreikninga fyrir áhafnir smábáta.  Forritið byggir útreikninga á nýgerðum kjarasamningi LS og sjómannasamtakanna og er einkar aðgengilegt.  
Skrá þarf grunnupplýsingar um áhöfnina og aflaverðmæti og reiknar þá forritið það sem með þarf og gengur frá fullunninni launaskýrslu inn í bókhald viðkomandi fyrirtækis.  
Engin vafi er á að með notkun forritsins verður hægt að lækka kostnað við bókhald samhliða því að félagsmenn verða betur meðvitaðir um reksturinn.