Loftslagsmál voru eitt þeirra fjölmörgu málefna sem aðalfundur LS tók til umræðu. Fulltrúum á fundinum þótti það jákvætt að stjórnvöld væru nú í æ ríkara mæli að koma að þessum málaflokki.
Smábátaeigendur eru sannfærðir um að eitt af tækifærum stjórnvalda í að draga úr mengun við fiskveiðar liggi í að auka hlut smábáta við nýtingu auðlindarinnar.
Eftirfarandi tillaga var samþykkt:
- Aðalfundur LS telur að í ljósi þeirrar gríðarlegu áherslu sem
- stjórnvöld leggja á að vera fremst allra þjóða í loftslagsmálum
- skorar hann á þau að sýna þann vilja í verki með því að efla til
- muna smábátaútgerðina, þann hluta flotans sem skilur ekki
- aðeins eftir sig minnsta sótsporið við fiskveiðar, heldur og
- minnstu raskinu í umhverfi hafsins.