Loðna í miklu magni

Að sögn Þorvaldar Garðarssonar útgerðarmanns og skipstjóra Sæunnar Sæmundssonar ÁR er enn gríðarlegt magn loðnu útifyrir Suðurlandi.  Þorvaldur sagði þetta óvenjulegt ástand og vitnar þar til reynslu sinnar á loðnugöngum á miðunum.  Hann hefur gert út frá Þorlákshöfn í rúm 40 ár og segist ekki muna eftir öðru eins magni eftir að búið hafi verið að veiða útgefinn kvóta. 
„Flest árin gengur loðnan hér með landinu og hverfur vestur fyrir land.  Nú hefur hún haldið sér hér á slóðinni í gríðarlegu magni, sagði Þorvaldur.
Þorvaldur sagðist velta því fyrir sér hvort mælingar Hafrannsóknastofnunar hafi brugðist og stofninn sé mun stærri heldur en niðurstöður sögðu til um.  Væri það rétt er hér um mjög gleðileg tíðindi að ræða fyrir lífríkið vegna hinnar miklu fæðu sem leggst til við dauða loðnunnar.