Loðna – niðurstöður koma á óvart

Lokið er leiðangri Hafrannsóknastofnunar sem farinn var til að mæla stærð loðnustofnsins.  Samkvæmt fyrri mælingum var vart hægt að búast við að nægjanlegt magn mundi mælast í leiðangrinum, hann mundi aðeins staðfesta að loðnuveiðar yrðu ekki heimilaðar á vertíðinni 2016/2017.   Það kom því skemmtilega á óvart að mælingar á stofninum sýna allt annað og betra en búist var við.  
Í fyrri ferðinni yfir svæðið sem mælt var varð niðurstaðan 398 þúsund tonn af kynþroska loðnu og í þeirri síðari mældust 493 þúsund tonn.  Meðaltal með tilliti til mæliskekkja gaf 446 þúsund tonn.
Screen Shot 2017-01-26 at 22.23.09 (1).jpg
Niðurstaðan heimilar stjórnvöldum að leyfa veiðar á allt að 57 þúsund tonnum, en það er það magn sem aflaregla gefur.   Samkvæmt henni skal skilja eftir 150 þúsund tonn til hrygningar með 95% líkum.  Við útreikninga er m.a. tekið tillit afrán þorsks, ýsu og ufsa.
Samkvæmt frétt í Fiskifréttum koma 12.155 tonn í hlut Íslendinga
Sjá nánar umföllun um loðnu