Hafrannsóknastofnun leggur til, í samræmi við aflareglu strandríkja, að leyfilegur heildarafli í loðnu á yfirstandandi fiskveiðiári verði ekki meiri en 459 800 tonn. Aukingin nemur 184 100 tonn – 67%.
Útfrá því að aukningin byggir alfarið á mælingum úti fyrir Húnaflóa hvetur Hafrannsóknastofnun til að afli sem nemur veiðibótarráðgjöf verði veiddur sem mest á þeim slóðum, þ.e. úti fyrir N-landi frá Horni að Langanesi. Því kemur það á óvart að stofnunin skuli heimila að þriðjungi hennar verði bætt við áðurgefna ráðgjöf sem nýtt verði með veiðum við S- og V-ströndina.
Samkvæmt þessu verður „heimilt að veiða 337 100 tonn við S- og V-strönd landsins – 22% aukning – og 122 700 tonn úti fyrir N-landi. Við þetta vaknar spurning um hvaða mælingar liggja til grundvallar því að auka loðnukvótann um rúman fimmtung?
Við ráðgjöf upp á 275 705 tonn var byggt á að stærð veiðistofn væri 743 635 tonn sem nú mælist 952 933 tonn og gefur fyrrgreinda aukningu.
Matvælaráðherra hefur tekið ákvörðun um að undirrita að reglugerð á morgun 27. febrúar, þar sem endanlegt útgefið aflamark í loðnu verði ákveðið í samræmi við ráðgjöf Hafró.
Leiðarlínur Árna Friðrikssonar 12.-21. febrúar ásamtdreifingu hafíss norðvestan við Ísland.