Nýlokið er mælingum á stærð loðnustofnsins. Á því svæði sem mælingarnar fóru fram á, sýna
útreikningar að stærð veiðistofnsins er 725 þúsund tonn af kynþroska loðnu.
Stærð stofnsins nú er því um þriðjungi stærri en í fyrra
þegar hann mældist 550 þúsund tonn. Samkvæmt
aflareglu eru 400 þúsund tonn skilin eftir til hrygningar, þannig að heimilt
verður að veiða 325 þúsund tonn á vertíðinni 2010/2011.