LS 37 ára í dag

Þann 5. desember 1985 var Landssamband smábátaeigenda stofnað. 
37. afmælisdagur LS í dag.
Við stofnun LS var afli smábáta um 20 þúsund tonn.
Á síðasta fiskveiðiári veiddu smábátar 77,7 þúsund tonn sem skilaði 
29,4 milljörðum í aflaverðmæti og útflutningsverðmæti var tvöföld sú 
upphæð.
1. janúar 1991 komu til framkvæmda ákvæði í lögum um stjórn fiskveiða 
þar sem kveðið var á um að allir smábátar 6 brl. og stærri voru kvótasettir 
(950 alls).  Aðrir smábátar (1.100 alls) fengu aðlögunartíma til 1. september 
1994 að ávinna sér aflaheimildir til kvóta þar sem hlutdeild þeirra var 
2,18% – krókabátar.
1. september 2022 var aflahlutdeild krókabáta til þorskveiðiheimilda 17,5%,
auk þess veiddu strandveiðibátar 11.074 tonn.
Til hamingju með daginn.

221205 logo_LS á vef.jpg