LS fundar með sjávarútvegsráðherra

Fyrr í dag funduðu formaður og framkvæmdastjóri LS með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.  Eins og tilheyrir fyrsta fundi með ráðherra var félagið kynnt og farið yfir helstu áherslur í framtíðarplönum þess.  
Einnig voru ráðherranum kynntar samþykktir 32. aðalfundar LS sem haldinn var 13. og 14. október 2016.  Meðal þeirra málefna sem þar voru sérstaklega rædd við sjávarútvegsráðherra voru:
Strandveiðar
Makrílveiðar
Grásleppuveiðar
Byggðakvóti
Þorskkvótinn
Fiskmarkaðir
Uppboð veiðiheimilda
Samningaviðræður
Fyrirhugaðir eru fleiri fundir með ráðherranum á næstunni.