LS leggur til 257 þúsund tonna þorskafla

Formaður og framkvæmdastjóri LS funduðu með sjávarútvegsráðherra sl. miðvikudag.  Þar kynnti LS tillögu sína um leyfilegan hámarksafla í þorski.  
Á grundvelli tugaprósenta ofmats Hafrannsóknastofnunar á veiði- og hrygningarstofni og nýliðun ákvað LS að leggja til við ráðherra að hreyfa ekki við aflamarki í þorski.  Úrvinnsla og mat Hafrannsóknastofnunar væri ótrúverðugt og því ekki ástæða til að stökkva á það fyrr en að fenginni ítarlegri skoðun óvilhallra sérfræðinga, sjó- og vísindamanna.
Tölur eru teknar úr skýrslum Hafrannsóknastofnunar árin 2019 og 2021.
Screenshot 2021-06-25 at 15.38.55.png
Árið 2019 spáði Hafró að hrygningarstofninn 2020 yrði 629 þúsund tonn, en mælir hann nú, tveimur árum síðar, 385 þúsund tonn.