Grásleppuveiðar hófust 20. mars sl. Sextán dagar eru því liðnir af vertíðinni hjá þeim sem hófu veiðar á fyrsta degi grásleppu.
Hafrannsóknastofnun hefur lokið útreikningum úr mælingum rannsóknaleiðangurs sem fram fór í byrjun mars. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu sendi LS niðurstöðurnar í dag. Þar leggur stofnunin til að grásleppuafli fari ekki umfram 5.487 tonn, sem er 868 tonna minnkun milli ára.
Grásleppunefnd LS fundaði um niðurstöður á mælingum Hafró fyrr í dag. Á fundinum var ákveðið að leggja til við ráðuneytið að veiðidagar á yfirstandandi grásleppuvertíð verði 40 sem er 6 dögum færra en endanleg ákvörðun varð á síðustu vertíð. Ákvörðun nefndarinnar er byggð á veiði undangenginna tveggja ára, þar sem þess er gætt að afli fari ekki umfram tillögu Hafrannsóknastofnunar.