Landssamband smábátaeigenda fundaði með Steingrími J. Sigfússyni sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra sl. mánudag. Tilefnið var afstaða LS til tillagna Hafró um heildarafla á næsta fiskveiðiári.
Á fundinum kynnti LS tillögur sínar sem ekki eru allar samstíga ráðleggingum Hafrannsóknastofnunarinnar.
Í bréfi til ráðherra færir félagið mörg rök máli sínu til stuðnings. T.d. er ráðherra bent á að verði farið að tillögum Hafró varðandi þorskinn er allt útlit fyrir að aðeins verði veitt 16% af áætluðum veiðistofni hans á næsta ári.
Hlutfallið hefur farið minnkandi ár frá ári, þegar litið er til endanlegrar mælingar á veiðistofni. Árið 2011 var hlutfallið 18% og allt stefnir í að það verði 17% á þessu ári. Aflaregla sem stjórnvöld hafa farið eftir, og LS hefur rækilega verið minnt á að ekki verði vikið frá, hljóðar hins vegar í stórum dráttum upp á 20%.
Þegar litið er til þessara þátta þykir LS einsýnt að ráðherra ákveði heildarafla í þorski á næsta ári amk. 230 þús. tonn.