LS ráðleggur 289 þúsund

Landssamband smábátaeigenda hefur sent Kristjáni Þór Júlíussyni sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra tillögu sína um leyfilegan heildarafla í þorski.  Ráðherra er þar hvattur til að heimila 289 þúsund tonna afla á næsta fiskveiðiári sem 6% meira en Hafrannsóknastofnun ráðleggur.
LS byggir tillögu sína á að veiðistofn á árinu 2018 hafi mælst hærri en spáð var á síðasta ári.  Ráðlagður heildarafli á árinu hefði því verið lægri en 20% aflaregla reiknaði.  Hér væri því um leiðréttingu að ræða sem ráðherra bæri að taka tillit til þegar hann ákveður leyfilegan heildarafla.
Screenshot 2019-06-19 at 22.50.57.png
Í bréfi LS til ráðherra er tæpt á mörgum þáttum sem styðja tillög LS og þar m.a. komið inn á mikilvægi þess fyrir þjóðarbúið.
  
„Í þeim ólgusjó sem blasir við í þjóðarbúinu munar um allt sem gefur því auknar tekjur.  Velta þarf við hverjum steini.  Ákvörðun um leyfilegan heildarafla í þorski varðar gríðarlega hagsmuni.  Þorskurinn trónir yfir aðrar tegundir í aflaverðmætum (49% á síðasta ári) og er undirstaða sjávarútvegs á Íslandi.
  
Sjá bréf LS til ráðherra    Heildarafli í þorski 2019-2020 – tillaga LS.pdf