Hinn 2. júní sl skrifuðu annars vegar Landssamband smábátaeigenda (LS) og hins vegar Hampiðjan/Voot undir samning þar sem félagsmönnum LS er boðinn afsláttur, 10%-40%, mismunandi eftir vöruflokkum.
Á heimasíðu Hampiðjunnar er frétt af opnun glæsilegrar verslunar að Skarfabakka 4 við Sundahöfn.
Hampiðjan/Voot eru með starfstöðvar í Reykjavík, á Ísafirði, Akureyri, Neskaupstað og í Vestmannaeyjum. Samningurinn nær til allra þessara staða.
Myndin er tekin í hinni nýju verslun á Skarfabakka, eftir undirritun samningsins.
Örn Pálsson, framkvæmdastjóri LS, Þorsteinn Finnbogason markaðsstjóri Voot,Ólafur Benónýsson verslunarstjóri og Arthur Bogason formaður LS