Í gær var haldinn fundur í stjórn Landssambands smábátaeigenda. Fyrirferðamest á dagskrá fundarins voru veiðigjöld og strandveiðar.
Í umræðu um strandveiðar lá fyrir frumvarp atvinnuveganefndar Alþingis. Segja má að afar skiptar skoðanir voru um þær breytingar sem frumvarpið felur í sér að gerðar verða á stjórnun veiðanna. Allir stjórnarmenn voru sammála um að 48 daga kerfi sem boðið væri upp á mundi bæta fyrirkomulag strandveiða að því tilskyldu að tryggt væri að dagarnir héldu. Að ekki kæmi til stöðvunar veiða ef afli stefndi í að fara fram úr því sem ætlað væri.
Niðurstaða umræðunnar varð eftirfarandi ályktun:
Stjórn LS styður frumvarp atvinnuveganefndar um strandveiðar.Það er afar jákvætt fyrir framþróun strandveiða að hægt verði að velja daga. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að veiðidagar til strandveiða árið 2018 verði 48, skipt jafnt á strandveiðimánuðina maí, júní, júlí, ágúst.Stjórn LS mótmælir þó ákvæði frumvarpsins um heimild Fiskistofu til að stöðva veiðar stefni heildarafli í að fara umfram heildaraflaviðmiðun. Aðstæður á hinum 4 veiðisvæðum strandveiða er mjög mismunandi hvað fiskgengd snertir.Þannig að tilraunin verði marktæk er nauðsynlegt að tryggja 12 veiðidaga á bát í hverjum mánuði á öllum veiðisvæðum.LS leggur áherslu á að ufsi við strandveiðar telji ekki til heildaraflaviðmiðunar og að ekki verði skylt að landa honum sem VS-afla.Samþykkt af stjórn LS6. apríl 2018