Makríll frá dagróðrabátum – framleiðsla í hágæðaflokki

Jón Bjarnason fv. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra tjáir sig um makrílveiðar dagróðrabáta á heimasíðu sinni í dag.  „Aukum hlut smábáta og landvinnslu í makríl er yfirskrift greinarinnar.  
Í upphafi vitnar Jón til greinar Unnsteins Þráinssonar og tekur undir með honum um að brýnt sé að auka stórlega hlutdeild og magn til smábáta í veiðum á makríl, efla dagróðra og landvinnsluna á makrílnum.
Jón gerir breytt göngumynstur makrílsins að umtalsefni; „í upphafi þegar makríllinn hélt sig djúpt undan SA- og Austurlandi.  Makríllinn hefur nú gengið upp í miklu magni á hefðbundin mið smábátasjómanna og annarra dagróðrabáta.
Jón segir í grein sinni að hann hafi ekki órað „fyrir því að makríllinn mundi ganga í svo miklu magni inn á grunnslóðina inn á víkur og firði hringinn í kringum landið eins og raun varð á.  Þessar forsendur bæði réttlæti og kerfjast þess að það magn sem úthlutað er til smábáta og annarra dagróðarbáta verði stóraukið frá því sem verið hefur.  Landssamband smábátaeigenda hefur sett fram röktuddar óskir í þeim efnum.