Makrílleyfi úr 17 í 239

Samkvæmt reglugerð um stjórn makrílveiða íslenskra fiskiskipa árið 2013 verður heimilt að hefja færaveiðar á makríl 1. júlí nk.  Áhugi fyrir veiðunum er langt umfram það sem búist var við.  Alls hafa 239 útgerðir sótt um leyfi fyrir báta sína á komandi vertíð. 
Talsverð óvissa er um hversu margir munu skila sér til veiðanna en ljóst er að hér er um gríðarlega fjölgun frá því í fyrra þegar 17 bátar stunduðu færaveiðar á makríl.