Makrílveiðar halda áfram

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið hefur gefið út reglugerð um breytingu á stjórn makrílveiða árið 2012.  Þar er bátum sem veitt hafa úr krókapottinum heimilað að stunda veiðar í 10 daga eftir að búið er að veiða þau 845 tonn sem ætlað var til veiðanna.
Eins og komið hefur fram hafa makrílveiðar krókabáta gengið afar vel upp á síðkastið og bátarnir því búnir með áætlað magn löngu fyrir þann tíma en búist var við.   Ráðuneytið hefur með reglugerðinni brugðist við óskum LS um framlengingu og heimilað þeim bátum sem leyfi hafa að veiða í 10 daga til viðbótar frá og með deginum í dag.   Hér er um veiðidaga að ræða og geta því útgerðaraðilar ráðið því sjálfir hvaða daga þeir velja til veiðanna.