Málstofa um útbreiðslu makríls

 
 
Hafrannsóknastofnun heldur á morgun miðvikudaginn 22. mars málstofu um útbreiðslu makríls. Þar mun Anna Heiða Ólafsdóttir sérfræðingur á Hafrannsóknastofnun flytja erindi sem nefnist:
Útbreiðsla makrils á Norðaustur-Atlantshafi frá 1997 til 2016.
 
 
Málstofan hefst kl 12:30.  Fyrir áhugasama sem ekki komast í Sjávarútvegshúsið verður hægt að fylgjast með gegnum YouTube á síðu Hafrannsóknastofnunar.
 
 
Í fyrirlestri Önnu kemur m.a. fram að síðastliðinn áratug hefur útbreiðslusvæði makríls, að sumarlagi í NA-Atlantshafi, tvöfaldast.  Frá því að vera takmarkað við Noregshaf í að ná til austurstrandar Grænlands.  Hvers vegna?  Um það eru margar tilgátur – t.d. stækkun makrílsstofnsins og hækkun á hitastigi sjávar.
 
 
Málstofa Hafrannsóknastofnunar er öllum opin og aðgangur ókeypis.