Margir vildu þorsk og keilu á skiptimarkaðinum

Fyrir nokkru auglýsti Fiskistofa eftir tilboðum í þorsk, keilu og Djúprækju í skiptum fyrir steinbít.  Mikil umframeftirspurn var í þorsk og keilu, en minni áhugi á Djúprækju.

Alls skiluðu viðskiptin Fiskistofu 126,7 tonnum í aflamarki í steinbít.  Ellefu bátar fengu þorsk í skiptunum og sex keilu.