Aðalfundur Skalla – félag smábátaeigenda á N-vestra – var haldinn á Sauðárkróki 19. september sl. Fundinn sóttu félagsmenn allt frá Hvammstanga að Siglufirði.
Sverrir Sveinsson formaður Skalla flutti ítarlega skýrslu um starfsemina á árinu. Fyrirferðamikið var barátta félagsins við að fá opnað reglugerðarhólf á Fljótagrunni, en þar hafa handfæraveiðar verið bannaðar undanfarin ár. Beiðni félagsins var keyrð gegnum Hafrannsóknastofnun þar sem lögð var fram tillaga um nýjar viðmiðunarpunkta byggða á upplýsingum frá heimamönnum. Þrátt
fyrir að sýnatökur sýndu að smáfiskur væri í óverulegu magni á því svæði sem tillaga var gerð um að opna var ekki fallist á breytingar. Skalli undi ekki þeirri niðurstöðu og krafðist aðkomu ráðherra að málinu. Það bar ekki tilætlaðan árangur þar sem hann hafnaði einnig breytingartillögu Skalla.
Að sögn kunnugra er það hvergi þekkt í víðri veröld að stjórnvöld banni handfæraveiðar vegna mælinga sem gefa til kynna að 25% af afla á tilteknu svæði sé undir ákveðnum stærðarmörkum.
Á fundinum kynnti Steinar Skarphéðinsson skýrslu sem hann hafði unnið um strandveiðar. Þar komu fram kostir og ókostir strandveiða. Sjónarmið Steinars voru mikið rædd og lauk með samþykkt tillögu um rýmkun á reglum um strandveiðar.
Sverrir Sveinsson Siglufirði – formaður Skalla
Í umræðu um grásleppumál voru fundarmenn sammála um að markaðsaðstæður ættu að ráða fjölda veiðidaga. Þá hafnaði aðalfundur Skalla þeirri aðferðarfræði sem Hafrannsóknastofnun beitir við stofstærðarmælingu á grásleppu.