Meðalaldur 43 ár

LS hefur fengið lista frá Siglingastofnun um lögskráningu sjómanna á krókabátum á síðasta ári.  
Alls voru 1.423 sjómenn skráðir á bátana og var meðalaldur þeirra 43 ár af þeim voru 40 konur.  Flestir eru á aldursbilinu 40-49 ár 321 eða 23%, en 79% voru eldri en 20 ára og yngri en 60 ára.  
Á árinu 2011 voru 6.502 sjómenn lögskráðir á fiskiskip.  Nánar er fjallað um lögskráningu á heimasíðu Siglingastofnunar.