Merkingar hrognkelsa – mikilvæg rannsókn

Hafrannsóknastofnun og BioPol ehf á Skagaströnd hafa um langt árabil átt í samstarfi varðandi merkingar á hrognkelsum. Árið 2018 og 2019 voru 760 ungfiskar merktir í alþjóðlegum makrílleiðangri norður og suður af Íslandi og við austurströnd Grænlands (sjá mynd 1 og 2).   Ekki er vitað til þess að ungviði hafi áður verið merkt með þessum hætti en endurheimtur geta gefið mjög mikilvægar upplýsingar um vöxt hrognkelsa og hvert þau ganga til hrygningar.

Picture3.png

Mynd 1. Staðsetning merktra hrognkelsa í makrílleiðangri árið 2019.  Appelsínugulir punktar sýna staðsetningu merkingarstaðar og endurheimtustaðar þeirra fjögurra fiska err merktir voru 2018 en endurheimtust árið 2019.
Picture2.png
Mynd 2. Merkt grásleppa
Ef þú veiðir merktan fisk vinsamlegast hringdu í númerið sem er á merkinu (896-7977) og tilkynntu staðsetningu. Ekki fjarlægja merkið en komið fiskinum sem fyrst í frysti og í kjölfarið verður reynt að nálgast hann. Verðlaun verða einungis greidd ef fiskurinn skilar sér í heilu lagi og merkið er enn  í honum.
Greiddar verða 5000 kr fyrir hvern fisk sem berst í heilu lagi til BioPol á Skagaströnd. Einnig fær sendandi upplýsingar um hvar og hvenær fiskurinn var merktur.
Í umræddum makrílleiðangri hafa hrognkelsi veiðst sem meðafli í efstu lögum sjávar á hafsvæði sem nær frá austur Grænlandi, allt í kringum Ísland og norður með Noregi. Mynd nr. 3 sýnir útbreiðslu fiskanna sem fengust í leiðangrinum sumarið 2019.  Ekki er ljóst hvar þessi fiskur mun hrygna og hversu mörgum árum hann eyðir á þessum slóðum áður en hann kemur til hrygningar.  
Endurheimtur á merktum fiskum munu hugsanlega hjálpa til við að svara þessum spurningum.
Picture1.png
Mynd 3. Afli hrognkelsa í makílleiðangri 2019.