N1 og Skeljungur lækka verð

Mánaðarleg verðathugun Landssambands smábátaeigenda á litaðri bátaolíu sýnir að verð er að gefa eftir.  Munur á hæsta og lægsta verði er 1,09% sem svarar 1,60 króna.  
Þetta eru gleðifréttir þar sem hækkun varð á verði á tímabilinu apríl – maí.
N1 er nú með lægsta verðið 144,80 kr / lítra.  
Frá síðustu könnun hefur verð lækkað mest hjá Skeljungi um 1,9%.
Eins og í fyrri könnunum eru öll verð án afsláttar.
LS mun halda áfram verðathugun og hvetur félagsmenn að vera á verði varðandi afslætti sem fyrirtækin bjóða frá því verði sem hér er birt.  Komið hefur í ljós að samanburður sýnir ekki alltaf þann afslátt sem viðkomandi er sagður hafa samið um. 
Verð á lítra 23. júní 2015
N1         144,80  kr / lítri
Skeljungur 144,90  kr / lítri
OLÍS 146,50  kr / lítri
Screen Shot 2015-06-24 at 18.22.04.png