Hér að neðan eru niðurstöður skoðanakönnunar sem send var á félagsmenn sem skráðir eru fyrir grásleppuleyfum þann 15. janúar síðastliðinn. Niðurstöður er varða afstöðu til vottunar voru birtar í síðustu viku.
Þeir félagar í LS sem ekki fengu könnunina og þeir sem áhuga hafa á að taka þátt í öðrum könnunum LS eru hvattir til að skrá tölvupóstfang sitt í gagnagrunn LS með þessu skráningarblaði.
Til stendur að gera könnun um viðhorf félagsmanna til breytinga sem gerðar voru á strandveiðum á síðasta ári. Sú könnun mun verða send út í febrúar.