Nýr kjarasamningur um ákvæðisvinnu

Undirritaður hefur verið nýr kjarasamningur um ákvæðisvinnu við línu og net.  Samningurinn er milli Starfsgreinasambands Íslands annars vegar og Landssambands smábátaeigenda og Samtaka smærri útgerða hins vegar.  
Samningurinn gildir frá 1. apríl 2019 til 1. nóvember 2022.
Launabreytingar í samningnum taka mið af Lífskjarasamningi Samtaka atvinnulífsins, verkalýðshreyfingarinnar og stjórnvalda.
Meðal nýmæla í samningnum eru ákvæði um: 
      • starfsaldurshækkanir 
      • skilgreining á línu – 7 millimetra sver lína með 1,20 metra á milli króka 
      • launataxti um yfirferð á línu og lagfæring á krókum í rekka hjá bátum með vélbeitingu.
Myndin er tekin við undirritun samningsins.  
IMG_0435.png
Fv. Axel Helgason formaður LS, Flosi Eiríksson framkvæmdastjóri SGS, Magnús S. Magnússon formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Sandgerðis, Bárður Guðmundsson formaður SSÚ og   Örn Pálsson framkvæmdastjóri LS.