Eins og greint var frá í gær hefur LS skilað til atvinnuveganefndar Alþingis umsögn um frumvarp til laga um stjórn fiskveiða.
Meðal þess sem félagið leggur áherslu á að verði breytt í frumvarpinu er eftirfarandi:
- Ráðgefandi hópur útgerðarmanna og sjómanna komi að veiðiráðgjöf ásamt Hafrannsóknastofnuninni.
- LS er andvígt sams konar nýtingarstefnu og fylgt er í þorski byggða á aflareglu í formi reiknireglu sem byggir á stofnstærðarmælingum Hafrannsóknastofnunarinnar.
- Ráðherra verði heimilt að breyta heildarafla innan fiskveiðiársins sem nái til einstakra veiðisvæða og veiðarfæra.
- Áætlaður afli til strandveiða og afli til línuívilnunar hafi ekki áhrif til lækkunar á heildarafla til aflahlutdeildar.
- LS mótmælir harðlega gengisfellingu aflahlutdeildar við ákveðið hámark á heildarafla.
- LS krefst þess að gerður sé nýtingarsamningur í stað nýtingarleyfa og hann nái til 25 ára.
- LS mótmælir harðlega skerðingu aflahlutdeilda um 3% við framsal, frystingu framsalsheimilda við núverandi aflamark og afnámi framsals á aflahlutdeild 1. september 2032.
- Framsal verði að mestu án takmarkana
- Strandveiðar verði án heildaraflaviðmiðunar enda skerði þeir ekki rétt aflahlutdeild krókaaflamarksbáta né smábáta á aflamarki.
- Standa vörð um byggðakvóta og línuívilnun sem nái til allra dagróðrabáta
- VS reglur verði sérstaklega útfærðar við grásleppuveiðar
- Fjölgað verði tegundum sem falla undir hámarksaflahlutdeild og veittur verði aðlögunartími í 15 ár.
- Mótmælt er harðlega niðurfærslu aflahlutdeildar í þorsk, ýsu, steinbít og ufsa og krefst LS þess að ákvæði gildandi laga „niðurgírun er lúta að „aflapottum verði óbreytt.
- Ný lög komi til framkvæmda 1. september 2013