Hafin er endurgreiðsla á veiðigjaldi vegna grásleppuafla sem innheimt var og Hæstiréttur dæmdi ólöglegt. Endurgreiddir eru reikningar sem gefnir voru út tímabilið frá október 2012 – október 2015 auk vaxta.
Fiskistofa bendir á að ef sá sem á rétt á endurgreiðslu, á útistandandi gjöld hjá innheimtumönnum ríkissjóðs verða þau skuldajöfnuð áður en til endurgreiðslu kemur.