Landssamband smábátaeigenda telur nýgerðan samning, á grundvelli olíuútboðs sem Sjávarkaup hf annaðist fyrir hönd félagsins, færa félagsmönnum mikla kjarabót. Samkvæmt samningnum sem gerður var við Skeljung hf verður lítraverð m. vsk. í janúar á olíu á báta félagsmanna 96,81 krónur fyrir þá sem nota meira en 6.000 lítra á ársgrundvelli og 99,29 til þeirra sem nota minna magn.
Hér er um ótrúlega verðlækkun að ræða. Til samanburðar er verðið 21% lægra en það var þann 24. nóvember sl. eða 25,79 krónur á hvern lítra.
Góð viðbrögð hafa orðið hjá félagsmönnum við samningnum. Hann sé sönnun þess hverju hægt er að áorka í krafti fjöldans. LS bendir á að enn er hægt að skrá sig til þátttöku og efla þá samstöðu sem er undirstaða verðlækkunarinnar.