Þorgerður Katrín til Vestfjarða

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur ákveðið að flytja skrifstofu sína tímabundið til Ísafjarðar.   Þar mun hún dvelja dagana 13., 14. og 15. febrúar í næstu viku.
Ráðherrann verður með viðtalstíma milli kl 08:30 og 12:00 þriðjudaginn 14. febrúar í fundarsal Háskólaseturs Vestfjarða í Vestrahúsi, Árnagötu 2-4 á Ísafirði.   Óskir um viðtöl skulu berast í netfangið gudny.steina.petursdottir@anr.is 
Dvöl ráðherra á Ísafirði er fyrsti liður í áætlun ráðuneytisins í að styrkja tengsl við sveitarfélög utan höfuðborgarsvæðisins.  Áætlað er að skrifstofan flytji tímabundið út á land þrisvar til fjórum sinnum á ári.