Þorlákur Halldórsson varaformaður LS

Að loknum aðalfundi LS er það venja að nýkjörinn stjórn komi saman til fundar.  Fastur dagskrárliður á þeim fundi er kosning varaformanns.  
Á fundinum baðst Þorvaldur Garðarsson undan endurkjöri en hann hefur verið varaformaður LS í 6 ár.  Fyrst tímabilið 2004 – 2007 og sl 3 ár 2013 – 2016.  Hér með er Þorvaldi þakkað fyrir störf sín sem varaformaður Landssambands smábátaeigenda.  
Tveir stjórnarmenn gáfu kost á sér til embættis varaformanns.  Vigfús Ásbjörnsson Hrollaugi og Þorlákur Halldórsson Reykjanesi.
Þorlákur.jpg
Varaformaður LS var kosinn Þorlákur Halldórsson úr Grindavík.