Þorskafli verði 289 þúsund tonn

Föstudaginn 15. júní sl. funduðu fulltrúar Landssambands smábátaeigenda með sjávarútvegsráðherra þar honum voru kynntar tillögur félagsins um hámarksafla á næsta fiskveiðiári.
Þorskur – leyfilegur heildarafli verði 289 þúsund tonn.
Landssamband smábátaeigenda hefur á undanförnum árum hvatt til meiri þorskveiði en tillögur Hafró hafa boðað.  Tillögur LS hafa lengst af verið á hógværum nótum, ef undan er skilið síðasta ár þegar LS gerði tillögu um að heimilt yrði að veiða 20,8% meira en Hafrannsóknastofnun ráðlagði.  Tillaga LS nú gerir ráð fyrir nýrri nálgun sem reiknar heildarafla upp um 9,3%.
Hlutfall þess sem veitt hefur verið ár hvert úr veiðistofninum hefur undangengin sjö ár verið 18,4%, lægst 2015, 17,7%, en í aflareglu er gert ráð fyrir 20%.  
Þorskveiði sem hlutfall af veiðistofni
Screen Shot 2018-06-18 at 10.34.23.jpg
Tillaga LS er að heimilt verði að veiða 289 þúsund tonn af þorski á fiskveiðiárinu 2018/2019, sem er 24.600 tonnum umfram tillögu Hafrannsóknastofnunar.   Viðbótin er mismunur á veiðihlutfalli 2017 (afli/veiðistofn) og 20% hlutfalli sem nýtingarstefna stjórnvalda gerir ráð fyrir.
Ætla má að aflaverðmæti þessarar viðbótar, er af verður, verði um 5,5 milljarðar og útflutningsverð kringum 12 milljarðar.  Hér er því um afar mikla hagsmuni að ræða.  
LS hvatti sjávarútvegsráðherra til að fara að tillögunum, enda telur félagið að meginstef aflareglunnar sé að árlega séu veidd 20% af veiðistofni.  Einnig benti LS á staða stofnsins nú væri afar góð, fara þyrfti aftur um tæpa sex áratugi til að finna svipað ástand.
Þorskstofninn hefur í nútíma aldrei staðið betur, milli 1,3 og 1,4 milljónir tonna 4 ár í röð og er spáð að fari yfir 1,4 milljónir tonna á árinu 2019.
Screen Shot 2018-06-18 at 10.47.44.png
Hrygningarstofninn mælist 652 þúsund tonn og fer stækkandi.  Fara þarf aftur til ársins 1960 til að finna stærri stofn, en það ár voru veidd 470 þúsund tonn af þorski.
Sterk nýliðun.  Útlit fyrir að veiðar á árinu 2019 verði bornar uppi af 6 stórum árgöngum, sem eru um það bil eða allir stærri en langtímameðaltal nýliðunar 1955-2018 – 175 milljónir 3 ára nýliða.
Screen Shot 2018-06-18 at 10.51.51.png

Tillögur LS um heildarafla fiskveiðiárið 2018/2019 og ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar:

 

Tillögur LS

Tillaga HAFRÓ 2018/2019

Þorskur

289.000 tonn  

264.437

Ýsa

60.000 tonn

57.982

Ufsi

79.000 tonn

79.092

Steinbítur

10.000 tonn

9.020

Langa

6.000 tonn

6.225

Keila

4.000 tonn

3.776 

Skötuselur

1.000 tonn

722

Grásleppa

 

1.557

Blálanga

1.500 tonn

1.520

Afrit af bréfi LS til ráðherra