Þorskverð að braggast

Verð á þorski sem seldur er gegnum fiskmarkaði hefur stigið jafnt og þétt undanfarna daga.  
Þann 15. maí var ríkti svartsýni hjá útgerðarmönnum línu og handfærabáta.  Óslægður þorskur af línu seldist á 202 Kr/kg og á færi var verðið 149 Kr/kg.
Öllu léttara var yfir mönnum í lok uppboðs í dag, 26. maí.  Þorskur af línu gaf 306 Kr/kg og handfæri 275 kr/kg.  Umreiknað í evrugengi dagsins 1,78 EUR/kg.  
Það er vonandi að verð haldi áfram að hækka, enda nokkuð í land að það nái sömu upphæðum og fyrir ári 314 Kr/kg sem jafngilti 2,27 EUR/kg. 
Screenshot 2020-05-26 at 17.37.04.png