Þorvaldur tekur við af Garðari

Aðalfundur Smábátafélags Reykjavíkur var haldinn sl. miðvikudag. Góð mæting var á fundinn og umræður fjörugar.  
Það bar til tíðinda á fundinum að Garðar Berg Guðjónsson sem verið hefur formaður félagsins sl. fimm ár gaf ekki kost á sér til endurkjörs.

Gardar Thorvaldur100_5145-thumb.jpg

 
Nýr formaður Smábátafélags Reykjavíkur var kosinn Þorvaldur Gunnlaugsson (tv. á myndinni).  Þorvaldur er ekki ókunnugur starfinu þar sem Garðar tók við af honum á aðalfundi félagsins í október 2006.
Garðari voru þökkuð vel unnin störf í þágu félagsins.  
Á fundinum var mikil umræða um hafnaraðstöðu trillukarla í Reykjavík.  Fram kom í máli forsvarsmanna hafnarinnar að búið væri að opna aðstöðu fyrir smábáta við Norðurgarð.  Þar teldu þeir ætti að vera betri og öruggari aðstaða fyrir bátana en í Suðurbugtinni.  Nokkrir smábátaeigenda sem tjáðu sig um þessa nýju aðstöðu höfðu uppi efasemdir um öryggi hafnarinnar fyrir úthafsöldunni en höfnin er illa varin fyrir austanáttinni.
Félagsmenn sögðu þó aðstöðumálin öll vera á réttri leið, þó alltaf mætti betur gera.  Lofuð var landaðstaða hafnarinnar, en upptökubrautin talin varhugaverð.