Að loknum aðalfundi LS er venja að nýkjörinn stjórn komi saman til fundar. Fastur dagskrárliður á þeim fundi er kosning varaformanns.
Á fundinum lá fyrir að Þorlákur Halldórsson gæfi ekki kost á sér til endurkjörs, en hann hefur verið varaformaður LS frá 2016.
Hér með er Þorláki þakkað fyrir störf sín sem varaformaður Landssambands smábátaeigenda.
Örvar Marteinsson formaður Snæfells gaf kost á sér og var kjörinn með lófataki.
Örvari er hér með óskað til hamingju með kjörið.