Óvissa með grásleppuveiðar

Samkvæmt reglugerð um hrognkelsaveiðar er grásleppukörlum á Norður- og A-landi og við Reykjanes heimilt að hefja veiðar nk. fimmtudag 20. mars.  Á öðrum svæðum að undanskildum innanverðum Breiðafirði má hefja veiðar 1. apríl. 
Nefnd verð hreinasta móðgun
Meiri óvissa er um upphaf og horfur á komandi vertíð en verið hefur mörg undanfarin ár. 
Kaupendur sýna lítinn áhuga og verð sem nefnd hafa verið eru lægri en í fyrra, sem er hreinasta móðgun eins og einn grásleppukarlinn orðaði það.  Auk þessa er ekkert vitað um fjölda veiðidaga, það veltur á því hver útkoman verður úr togararalli Hafrannsóknastofnunar.
Á fundi í Kletti (Ólafsfjörður – Tjörnes) nú nýverið var ályktað um að hefja ekki veiðar fyrr en endanleg ákvörðun ráðherra liggur fyrir um fjölda daga.  Í fyrra varð sú dagsetning 26. mars, en hún gæti dregist eitthvað á þessari vertíð þar sem rallið hófst þrem dögum seinna nú en í fyrra.  
Innistæða nú fyrir 20 dögum minni en í fyrra
Þegar tekið er mið af símtölum á skrifstofu LS er ljóst að áhugi fyrir veiðunum er takmarkaður. Flestir gefa þær skýringar að verðið sem nefnt hefur verið sé of lágt og nægi ekki til að dekka kostnað við veiðarnar.  Þá sé mikilvægt að draga úr veiðinni til að jafnvægi komist á framboð og eftirspurn.  Einnig nefna menn sem skýringu að 20 dagar nú byggist á mun slakari mælingu úr togararalli.  Líkur á að þeim verði fjölgað í ásættanlega tölu séu því ekki miklar.
Kavíarinn lækkar minna en hráefnið
Landssamband smábátaeigenda hefur farið yfir útflutningstölur frá Hagstofu Íslands fyrir sl. ár og borið saman við 2012.  Þar kemur fram að verðlækkun á kavíar varð mun minni en á hráefninu og munar þar tugum prósenta.  
Að mati LS er því ekki forsenda til að lækka verð á grásleppuhrognum meira en orðið er.  Snúa þarf dæminu við og gefa skýr skilaboð um verðhækkun.  
250 kr verði viðmiðunarverð
LS telur að náist samkomulag um að 250 kr kílóaverð á óskorinni grásleppu muni það mynda stöðugleika og minnka þann óróa sem verið hefur á mörkuðum.  Framleiðendur grásleppukavíars þurfi að ganga útfrá því sem lágmarksverði við sölusamninga á fullunninni vöru.
LS hvetur alla grásleppusjómenn til að líta til framangreindra upplýsinga svo og fyrirsjáanlegrar minnkunar á heildarveiði þegar samið verður um verð á vertíðinni.  Ennfremur þarf að íhuga vel útfrá þekktum fjölda veiðidaga hvenær sé best að hefja veiðar. 
      
Grásleppa.png