Í Fiskifréttum þann 11. janúar er viðtal við Axel Helgason formann LS um afturköllun MSC-vottunar vegna grásleppuveiða. „Okkar menn eru í mikilli óvissu um hvaða áhrif þetta hefur á þeirra hag segir Axel.
Í viðtalinu gagnrýnir Axel vinnubrögð við útreikninga á meðafla og segir þau engan vegin standast skoðun.
„Vottunin er felld út af þremur tegundum, það er landsel, útsel og teistu. Þeir byggja þetta á tveimur skýrslum, annarri frá Hafró og hinni frá fuglaverndunarsamtökunum Birdlife International. Í báðum þessum skýrslum eru gögnin fengin úr fáum veiðiferðum og þau síðan uppreiknuð yfir á allar veiðiferðir flotans með lítið eða ekkert tillit til staðsetninga, tíma eða dýpis.