Í samráðsgátt stjórnvalda er nú til umsagnar drög að reglugerð um rafræna aflaskráningu.pdf. Umsagnarfrestur er 23.12.2019 – 15.01.2020.
Gert er ráð fyrir að öll skip, stór og smá, skrái afla með rafrænum hætti í gegnum snjallsímaforrit frá og með 1. september 2020
Í samráðsgáttinni eru taldar upp helstu breytingar sem reglugerðardrögin fela í sér:
1. Allar skráningar verða rafrænar, annað hvort í rafræna afladagbók eða með smáforriti.2. Upplýsingar í afladagbók njóta ekki lengur leyndar sbr. 2. mgr. 2. gr. núgildandi reglugerðar um afladagbækur. Rökin eru þau að nú sést á netinu hvar skipin eru við veiðar og því er núverandi leynd orðin ástæðulaus.3. Í núgildandi reglugerð er kveðið á um að óheimilt er að hefja veiðiferð nema búnaður til skráningar rafrænnar afladagbókar sé um borð eða ef búnaður er bilaður. Í drögunum er farin sú leið að hnykkja frekar á því að skylt sé að skrá afla með rafrænum hætti. Það er því salfarið í hendur útgerðar að hlutirnir séu í lagi4. Í drögunum er ekki er kveðið á um neinar undanþágur frá þeirri reglu að allir skuli skila afladagbók á rafrænu formi þannig að afladagbók á pappírsformi mun heyra sögunni til.5. Aflaskráningu með rafrænum hætti skal lokið áður en lagst er að landi. Þetta gildir einnig fyrir rafræna afladagbók en áður höfðu útgerðir tvær vikur til að skila henni eftir að í land var komið.